Ráðgjöf og fræðsla 4u

Skyndihjálp · Fræðsla · Ráðgjöf

Fræðsla sem undirbýr fólk fyrir það sem skiptir máli

Við erum hjón sem sameinum reynslu úr slökkviliði og sjúkraflutningum við ráðgjöf þroskaþjálfa. Við bjóðum námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir, ráðgjöf og rafrænt fræðsluefni.

Um okkur

Hver við erum

Katrín og Bjarni í lopapeysum

Katrín Ruth Þorgeirsdóttir

Þroskaþjálfi, ráðgjafarþroskaþjálfi, fyrirlesari og námskeiðshaldari

Ég er gift, fjögurra barna móðir og amma fimm barnabarna. Ég er menntaður þroskaþjálfi og starfa sem ráðgjafarþroskaþjálfi á skrifstofu menntasviðs í sveitarfélagi, þar sem við þjónustum grunnskóla og leikskóla bæjarins.

Í hjáverkum held ég fyrirlestra og námskeið um málefni sem henta öllum aldursstigum. Ég kenni einnig skyndihjálp, fyrstu hjálp, Öryggi og björgun og sálræna skyndihjálp fyrir Rauða krossinn.

Ég hef víðtæka reynslu af því að þjónusta fólk með sérþarfir og stuðningsþarfir af ýmsum toga á öllum aldri, allt frá leikskólabörnum til eldra fólks, og af vinnu með krefjandi hegðun. Ég starfaði í 16 ár sem þroskaþjálfi á heimili fyrir geðfatlaða, hef verið ráðgjafi í barnavernd og á barna- og fjölskyldusviði, sinnt kennslu og stuðningi í grunnskóla, verið sérkennslustjóri í leikskóla og dagmamma og unnið í félagsmiðstöð og á elliheimili. Í björgunarsveit sinnti ég einkum fyrstu hjálp, sálrænum stuðningi og aðgerðamálum og er menntaður aðgerðastjórnandi.

Ég er mikil sundkona og elska að vera úti í náttúrunni. Allir þessir vinnustaðir hafa gefið mér dýrmæta reynslu og þekkingu sem ég vona að ég nái að fanga í góða fræðslu til ykkar.

  • Þroskaþjálfi
  • Krefjandi hegðun
  • Fyrirlesari
  • Aðgerðastjórnandi

Bjarni Rúnar Rafnsson

Slökkviliðsmaður, bráðatæknir og leiðbeinandi

Ég er giftur, fjögurra barna faðir og afi fimm barnabarna. Ég er menntaður slökkviliðsmaður og bráðatæknir og hef starfað sem slíkur í að verða 30 ár.

Ég er leiðbeinandi í sérhæfðri endurlífgun (ALS og ILS) og virkur í kennslu á því sviði, og kenni auk þess mikið fyrir Sjúkraflutningaskólann. Ég hef verið skyndihjálpar- og fyrstuhjálparleiðbeinandi hjá Rauða krossinum í mörg ár og er leiðbeinandi í Öryggi og björgun og sálrænni skyndihjálp.

Á mörgum árum í björgunargeiranum hef ég öðlast mikla reynslu, réttindi og þekkingu, meðal annars í fyrstu hjálp, rústabjörgun, sjóbjörgun, sálrænni skyndihjálp og aðgerðastjórnun.

Ég hef einnig tekið að mér námsefnisgerð og sett upp námskeið eftir þörfum hvers hóps, til dæmis endurmenntun heilbrigðisstarfsmanna.

  • Bráðatæknir
  • ALS- og ILS-leiðbeinandi
  • Kennari hjá Sjúkraflutningaskólanum
  • Rústa- og sjóbjörgun

Saman erum við

  • Skyndihjálparleiðbeinendur
  • Leiðbeinendur í Öryggi og björgun
  • Leiðbeinendur í sálrænni skyndihjálp
  • Aðgerðastjórnendur

Námskeið

Námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir

Við komum til ykkar og sníðum námskeiðið að hópnum. Hafið samband til að fá tilboð og finna tíma.

  • Fyrirlestrar og fræðsla

    Fyrir skóla, leikskóla, foreldrahópa og starfsfólk, um hegðun, þroska og líðan barna og fullorðinna.

  • Skyndihjálp

    Fyrstu viðbrögð við slysum og veikindum, endurlífgun og notkun hjartastuðtækis.

  • Sálræn skyndihjálp

    Hvernig styðja má fólk sem hefur orðið fyrir áfalli eða er í miklu uppnámi.

  • Sérsniðin námskeið

    Námsefnisgerð og námskeið sniðin að þörfum hvers hóps, til dæmis endurmenntun heilbrigðisstarfsmanna.

  • Ráðgjöf

    Ráðgjöf þroskaþjálfa og hegðunarráðgjöf fyrir einstaklinga, fjölskyldur og starfsfólk.

Dæmi um efni fyrirlestra

  • Erfið og krefjandi hegðun
  • Ofbeldi nemenda
  • Uppeldi barna
  • ADHD
  • Einhverfa
  • Kvíði
  • Úlfatíminn
  • Skipulögð kennsla
  • Sjónrænt skipulag
  • Hlutverk foreldra í þroska barna sinna

Og ýmis önnur málefni sem ég er beðin um. Hafið samband og við finnum efni sem hentar ykkar hópi.

Rafrænt efni

Til sölu

Forsíða bókarinnar Er nálgast jólin: jólasveinn kíkir inn um glugga á barn sem sefur

Er nálgast jólin – litabók með jólavísum

Þrettán jólasveinar, hver með sína vísu og sinn dag. Barnið litar sveininn kvöldið áður en hann kemur og skrifar svo hvað hann gaf í skóinn. 17 síður á PDF, prentast á heimilisprentara.

1.500 kr.

  1. Millifærðu 1.500 kr. á reikning 0133-26-006769, kt. 450722-1540.
  2. Settu netfangið þitt í skýringu.
  3. Bókin kemur í tölvupósti samdægurs.

Spurningar um bókina eða leikskólaleyfi: jolabok@radgjofogfraedsla4u.is

Hafa samband

Pantið námskeið eða sendið fyrirspurn

Netfanginfo@radgjofogfraedsla4u.is
FyrirtækiRáðgjöf og fræðsla 4u ehf.kt. 450722-1540